Færsluflokkur: Trúmál
29.3.2009 | 18:15
Öfgar íslams
"Við munum ná valdi á landi Vatíkansins, við munum stjórna Róm og innleiða íslam þar. Þannig að kristnir þurfa að greiða okkur djizya [sérstakur skattur sem dhimmíar þurfa að greiða múslimskum valdhöfum] í auðmýkt eða snúa sér til íslam." (Íslamistar og Naívistar bls. 197).
Þetta var haft eftir áhrifamiklum ímam í Saudi-Arabíu sem er helsti fjárhagslegur bakhjarl framrásar íslamismans í Evrópu.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2009 | 00:36
"Litla svarta Sambó heilkennið"...
...felst í því að ekki þykir viðeigandi að gera sömu kröfur til fólks af framandi uppruna, þar á meðal múslima, og gerðar eru til Vesturlandsbúa. Múslimskir innflytjendur vita bara ekki betur. Það er ekki hægt að gera þá ábyrga, enda er það ekki þeim að kenna. Þeir eru fórnarlömb og það er hlutverk okkar á Vesturlöndum að bera ábyrgðina fyrir þá - taka á okkur sökina, ef illa gengur. Í stuttu máli: menn vilja ekki líta á múslímska innflytjendur sem fullorðið, ábyrgt fólk. Á bak við sektarkennd og, að því er virðist einkar húmanískt viðhorf, er í raun litið mjög niður á múslímska innflytjendur. En fólkið á vinstri væng sem er haldið "litla svarta Sambó heilkenninu" hefur ekki áhuga á því hvernig raunveruleikinn í innflytjendamálum lítur út. Það er fremur hugsað um hvernig það sjálft lítur út með tilliti til pólitískrar rétthugsunar. Með aðstoð litla svarta Sambós geta menn ástundað tvöfalt siðgæði: þeir geta haldið uppi frjálslyndri ímynd með harkalegri gagnrýni á kristna og aðra "afturhaldsseggi," sem upprunnir eru í Evrópu. Á sama tíma styðja þeir trúarpólitík af íslömskum uppruna sem er andstæð frelsi. Þeir auðsýna mikinn skilning ef múslimar óska bænaherbergja á vinnustöðum, en ef kristnir bæðu um altari á sama stað yrðu þeir fremstir í flokki með nístandi háð (Íslamistar og Naívistar, 2006; bls. 184-185).
Er að lesa magnaða bók eftir hjónin Karen Jespersen og Ralf Pittelkow, Íslamistar og Naívistar sem gefin var út árið 2006 og í íslenskri þýðingu árið 2007.
Varð einfaldlega að skrifa þetta, en þessi texti á við svo margt þröngsýnt fólk.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar