Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
21.1.2009 | 19:04
Á Playa Amadores er...
búið að vera um 20°C í dag og stöku sól. Er að ljúka við Myrká og verð, þar sem Sú Gamla ætlar að fá hana til lestrar áður en ég flýg tilbaka á föstudagskveldið. La familia grande flaug tilbaka til Íslands í dag, nema ég, Sú Gamla, sem sjötug varð á mánudaginn og Sá Gamli.
15.9.2008 | 00:33
Á Klakanum
Er nú staddur á Klakanum þar sem ég mun taka þátt í ferðakaupstefnunni Vestnorden sem haldinn verður 15.september til 17.september. Ég kvaddi Kaupinháfn á föstudagskvöldið í skítakulda og roki - ljóst að haustið er komið til Danmerkur. Ísland tók við mér með rigningu og týpískum velkominnvindi. Síðan er búið að rigna meira og blása meira. Horfði á Liverpool flengja júnæted hjá félaga Púlara Hr. Sett og bankamanninum The Sideliner sem er júnætedmaður. Yfirspilun!
Djamm á föstudagskvöldið. Mjög góð og sanngjörn verð á börunum og sérstök ánægja að borga um 2.500 ISK fyrir leigubíl úr miðbænum í Salahverfið í Kópavogi þar sem ég gisti á Hótel Mömmu *****. Það eina sem er jákvætt við að greiða fyrir þetta næstumþvíokur er það að gengið er jákvætt fyrir mig.
Meira segja á Sá Gamli Tanqueray í skápnum sem verður að segjast vera framför þar sem glundrið Bífeter og Gordons hefur einokað ginskápinn hingað til. Nú er það eitt eftir að kenna honum að drekka G&T með limesneið líka!
Hélt mér svo þurrum á laugardagskvöldið en fór samt til Apótekarans um seint um kvöldið til að hitta Hr. Sett og félaga. The Sideliner var með í för. Hr. Sett blæddi Mojito á línuna (fyrir utan bindindismanninn). 5 x 1.700 = 8.500 ISK. Bærilegt og sanngjarnt verð.
Punktur
17.8.2008 | 16:03
Íslandsferð(ir) og "sumarfríið" ákveðið!
Þá nálgast í Íslandsferðina, 28.ágúst til 1.september. Hef ekki verið í höfuðborginni síðan 3.janúar, en var þó á Akureyri eina helgi í júní. Svík lit í þetta skiptið þar sem ég kem með Icelandair. Morgunflug þeirra frá Kaupinháfn er einhver mesta snilld íslenskrar flugsögu.
Kem svo aftur til Reykjavíkur 12.september og verð til 18.september. Í millitíðinni kemur góðra vina hópur hingað til Kaupinháfnar til drykkju og til að hlýða á tónleika R.E.M sem verða í Parken fyrstu helgina í september.
Ferðakaupstefnan Vestnorden hefst 15.september í Rvík, og verð ég þar við annan mann.
Loksins er svo "sumarfríið" nánast ákveðið. Í þetta skiptið fer ég til Cancún og verð í tvær vikur í nóvember. Panta gistinguna á mánudaginn og flugið í framhaldinu af því. Ekki leiðinlegt að fá 5 stjarna gistingu með all-inclusive á $1.157 fyrir tvær vikur. Mesta aurasál norðvesturhorns Íslands er með í för, og hittum við þar fyrir mexíkóska vini mína sem koma frá Mexíkóborg, en þau verða með okkur í eina viku.
Var annars í Mexíkó líka í nóvember 2006.
Einhver almesta reisa sem ég hef tekið þátt í ásamt Júróferðinni 2003 með Mexíkóunum!
Bara snilld!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2008 | 11:33
Djamm í Köben
The Sideliner mætti til Kaupmannahafnar í gær. Það er ekki frásögu færandi nema að það var djammað hart fram eftir nóttu, m.a. var Skipperkroen á Nyhavn heimsótt þar sem við stóðum fyrir fjörinu með þvi að mata írska trúbadorinn af lagahugmyndum. Staðurinn fylltist á augabragði, enda miklir gæðamenn í lagavali ég og Sideliner.
Endaði nóttin þannig að ég fór heim um 02:30, enda alltof kúltíveraður og skynsamlegur. Sideliner ætlaði að koma seinna, og ég átti að skilja eftir opið. Kl. 05:30 vakna ég og sé að Sideliner er ekki mættur. Fatta ég að ég hafði gleymt að skilja útihurðina opna fyrir kauða. Ekkert bólar á Sideliner og um kl. 09 fer ég að skoða netmiðlana til að athuga hvort eitthvað hræ hafi fundist fljótandi í kanölunum hér, eða að einhverjir mára og múlattar hafi stungið einhvern á Strikinu.
Um kl. 10 sá ég þetta svo á www.ekstrabladet.dk:
Mand voldtaget af mand i morges
En mand blev tidligt søndag morgen overfaldet, mishandlet og udsat for voldtægt af en anden mand i en trappeopgang....
Síðan áttaði ég mig á að þetta var í Stokkhólmi alllangt í burtu.
Ekki svaraði heldur GSM síminn hans þannig að ekki gat ég fengið svör um hvort Sideliner hafi verið fórnarlambið!!
En, Sideliner lét svo sjá sig um hádegið illa sjúskaður. Hafði þá hann verið fórnarlamb þess að ætla koma fyrr heim en áætlað, en ég hafði víst dottað og gleymt að skilja eftir opið þannig að hann komst ekki inn. Ekki virkaði bjallan heldur...atriði sem ég gleymdi að segja Sideliner frá!
Nú er það svo bara Kýpur í fyrramálið.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar