Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
14.8.2008 | 19:21
Viðbjóður dagsins!
Mörður Árnason hlýtur að teljast með leiðinlegustu mönnum veraldar. Röflar og tuðar út í eitt. Er heimsmeistari að grípa frammí fyrir öðrum til að tuða og röfla aðeins meira. Alltaf á móti. Hamasliðinn Ögmundur Jónasson kemst ekki með tærnar í leiðindum þar sem Mörður hefur hælana. Hafði gleymt manninum (Merði) þangað til Stöð 2 ákvað að bjóða honum í Ísland í kvöld. Kvöldið er ónýtt! Reyndi að slökkva en tækin hlýttu ekki!
Hreinskilnasti maður stjórnmálanna á Íslandi, Pétur Blöndal, átti sinn vífil ekki fegri þegar þeir mættust ótt og títt í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 sáluga. Mörður röflaði og greip frammí eins og honum væri greitt fyrir það. Allt var að fara til andskotans á meðan eitt mesta góðæri Íslands gekk yfir. Tel að það sé ekki tilviljun að hann komst ekki á þing.
Mörður er viðbjóður dagsins....en ég óska honum velfarnaðar í því sem hann er að gera fyrir utan pólitíkina!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.7.2008 | 21:08
Dihydrogen monoxide
Hvað ætli það séu margar mannvitsbrekkur* sem myndu skrifa undir það að þessi efnablanda muni tortíma lífi á jörðinni? Örugglega 95% meðlima Saving Iceland, til að byrja með.
*Umhverfisfasistar og vel valdir vinstrimenn!
Var annars í Gautaborg í dag í miklum hita og raka. Þess vegna var ekki gott að vera innanhús allan daginn þar sem sólin bakaði skrifstofuna!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2008 | 05:32
Mannfjölda ágiskanir Stöðvar 2 út úr kortinu!
Það er dálítið undarlegt að lesa og heyra fréttamiðla segja frá þessu. Stöð 2, eins og þeim er einum lagið, áætluðu að um ein milljón hefðu hlýtt á Obama. Mogginn segir hundruð þúsunda, RÚV segir tugir þúsunda. Stöð 2 hefur alltaf verið duglegt að ýkja tölur þegar það hentar þeirra pólitík, t.d. þegar Gómar rölti niður Laugarveginn um árið. Þýskur fjölmiðill "Morgenposten" segir að rúmlega 200.000 manns hafi heillast af Obama eins og danski fjölmiðillinn "Berlingske Tidende". Voru þá um 800.000 manns ekki ánægð með Obama í Berlín í gær?
Kannski Stöð 2 hafi fengið Róbert Marshall til að þýða erlent fréttaskeyti varðandi málið; ja eða Gaupa?
Obama tekið sem rokkstjörnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar