Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Eina virka stjórnarandstaðan er Spaugstofan"

Fyrir fimm árum síðan var ég staddur við Veiðivötn með bróður mínum og eiginkonu hans.  Hópur jeppamanna var með í för (ferð á vegum Útivistar), þar af Gylfi Arnbjörnsson nýkrýndur forseti ASÍ.  Eitt kvöldið var slegið upp varðeldi í kuldanum, en þetta var í nóvembermánuði.  Sungið var og drukkið allt kvöldið og ágætis skemmtun varð úr.  Þegar á leið var greinilega farið að tala um þjóðmál á einum stað í hópnum, jú einmitt þar sem hinn nýkrýndi forseti stóð.  Allt í einu stundu hátt úr Gylfa "Eina virka stjórnarandstaðan á Íslandi er Spaugstofan".  Gylfi Arnbjörnsson, sósíalisti (kalla sig jafnaðarmenn í dag) og klappstýra Enginbjargar Slorrúnar bar greinilega ekki mikið traust til eigin flokks árið 2003. Gerir hann það nú?

Nú var Gylfi kosinn forseti ASÍ eins og kom fram hér áður.  Bar hann sigurorð af Ingibjörgu eitthvað um stólinn.  Ekki heyrðist mikið í fasistadúkkunni Sóleyju Tómasdóttir við þá kosningu!?  Ha, karl kosinn umfram konu!??   Heyrist ekkert í kellu, þar sem um vinstrisinnaða kosningu er að ræða og mjög heppilega?  Var hann kannski búinn að lofa henni stöðu jafnréttisdúkku ASÍ?

 


Ég styð hryðjuverk?

Skv. Hr. Skítabrúnum, elskunni hans og flokksbræðrum í ríkisstjórn Bretlands styð ég óbeint hryðjuverk með því að hafa sparifé mitt hjá Landsbankanum.

Vona að Hr. Skítabrúnn lesi þetta ekki eða einhverjir veruleikafirrtir SÍÆEI-menn í BNA, en ég er búinn að mæla mér mót við Osama Bin Laden og Akkkkmeddddjani Íransforseta í næsta mánuði, þar sem við ætlum að fara yfir efnahags- og rekstrarreikning Al-Kaída og gera rekstraráætlun fyrir 2009.Cool


IMF: Krónuna á flot og háa stýrivexti

Hmmmm....er þetta ekki það nákvæmlega sama og Seðlabankinn er búinn að vera að gera síðan ég veit ekki hvenær? 

Hvern munu öfgavinstrimenn, ofurbloggarar og kaffishúsaspekingar vilja fá hengdan núna?

 


Megi moggabloggið fara til helvítis!

Sú mikla þörf sem margir hafa að skrifa og tengja skoðun sína við hverja andskotans frétt sem er birt hérna á mbl.is er aumkunarverð og viðbjóðsleg. Hefur þetta fólk virkilega ekkert annað að gera?? Er lífið virkilega svona innantómt hjá mörgum?

Nefni enga á nafn, en þetta er yfirónáttúrulegt.  Megi moggabloggið fara til fjandans, norður og niður og megi Húgó Chavez þjóðnýta bloggið sem fyrst í þágu skrattans og frænda hans.

E.s:  Er þetta kannski óviðeigandi blogg??


Hundrað þúsund milljónir!

Þegar Ómar labbaði niður Laugarveginn í den, þá áætluðu stuðningsmenn hans að um 20þ manns væru að taka þátt í göngunni.  Löggan sagði átta þúsund að mig minnir.   Aðstandendur Gay Pride segja að allt að 30þ manns hafi tekið þátt í skrúðgöngunni, löggan segir miklu minni tölu.  Nú segja kaffishúsaspekingar að nálægt 5þ manns hafi verið á Austurvelli.  Löggan segir um 500 manns.  Löggurnar eru fífl og fávitar vegna þess að þeir kunna ekki að telja rétt skv. spekingunum.  

Nú er það bara þannig að lögreglan er alltaf að meta og áætla fjölda fólks sem er í miðbænum í næturlífinu, skrúðgöngum eða opinberum tónleikum.  Er hún ekki hæfust til að gera þetta?


mbl.is Mótmæla Davíð Oddssyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskan blómstrar!

Í fréttum RÚV var talað um ung hjón MEÐ BARN Á LEIÐINNIW00t sem voru svo gæfusöm að ákveða að taka myntkörfuBÍLAlán þegar íslenska krónan var sem sterkust.  Nú rýkur allt upp og afborganir hækka og hækka.  Nú segir hin hugaða húsmóðir stopp, best sé að "parkera" bílnum þar sem afborgunin er fáránleg!!!

Hmmm.....bíddu nú við.  Þarf ekki að borga af láninu þótt bíllinn sé kyrrsettur??  Heimskuleg fréttamennska eða heimskuleg ung hjón?Woundering


Er nú lán?

Er ekki málið að flytja til Íslands núna.  Þ.e.a.s. ef sparifé manns þurrkast ekki upp áður en maður lendir í Keflavík?  Ætli maður geti ekki fengið íbúð sem sett er á 25m ISK í dag á svona 17m ISK og svo einn lúxusjeppa nánast gefins...kannski Bentley-inn hans JÁJ ef satt reynist að hann fari kannski að vinna á kassa í Bónus í næsta mánuði?Cool Smile

365 í hræðsluáróðri fyrir Baug?

http://www.visir.is/article/20081011/VIDSKIPTI06/694985695/-1

Jarpur samur við sig!

Segir ekki neitt og vill bara komast í ríkisstjórn.   Guð forði okkur frá því; allt annað er betra meira að segja mannlaus ríkisstjórn.

Bakland bankana

Ef að Seðlabanki Bandaríkjanna metur það svo að fjármálakerfið á Íslandi hafi verið alltof stórt fyrir þjóðarbú Íslands, og því treystir hann sér ekki til að lána Seðlabankanum; hvernig er þá hægt að búast við því að hinn "litli" Seðlabanki Íslands hafi haft nokkur tök á því að fylgja Kaupþing, Landsbankanum og Glitni eftir og bakka skuldir þeirra upp?? Er það einfaldlega bara ekki óraunhæft að ætlast til þess að SÍ hafi mátt (NB! sama hver stýrir bankanum), til að leysa svona rosalegt vandamál?

Ísland er ekki stórasta land í heimi.....lengur og Grísinn að fá kransæðarstíflu!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

GBE

Höfundur

Guðmundur Björn
Guðmundur Björn
Det kan godt være, at jeg ikke ved alt – men det er sjældent, at jeg møder nogen, der ved mere.

 

 

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • ...029_1011402
  • ...arfa_adalur
  • ..._092_866238
  • ...yazd_092
  • ...ined_866039

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband