Færsluflokkur: Bloggar

Hereford Beefstouw í Kaupmannahöfn!

hereford_kvaegBara snilld!  Fór á Hereford Beefstouw með Byggðastofnunar-Magga vini mínum í kvöld!  Að sjálfsögðu blæddi hann!

Dýrindis rauðvín drukkið með 300gr Sirloin steik og bakaðri kartöflu.  SLEF!Cool


Raunverulegt skatthlutfall tekjuflokka!

 

Það eru ekki allir sem átta sig á hve mikinn skatt þeir raunverulega greiða.  Ég tók því saman þessa töflu sem sýnir það, að fólk með t.d. 150.000 kr. í mánaðarlaun greiðir bara 17% tekjuskatt á meðan fólk með 500.000 kr. í mánaðarlaun greiða 32%.  Er þetta mikil skattbyrði fyrir tekjulágt fólk?  Persónuafslátturinn hefur auðvitað minni áhrif fyrir þá sem eru tekjuháir. 

Er ekki allur jöfnuðurinn sem umhverfisfasistarnir eru alltaf að tuða um í töflunni?  Tekjuháir greiða meiri skatt en tekjulágir!! Svo einfalt er málið!

 

 Picture1


Mugabe Suður-Ameríku!

CARI.ChavezÞessi maður er auðvitað bara glæsimenni. Lífgar upp á sósíalískan viðbjóð og gerir hann broslegan.  Hann og Mugabe eru örugglega óskilgetnir tvíburarbræður.  Grin

Ef Chavez væri ekki, þá myndum við kannski gleyma því hve öfgasósíalismi getur verið hættulegur! 

 

 


mbl.is Chavez hótar að þjóðnýta banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisverð grein um Norðmann sem gefur frá sér ríkisborgararéttinn!

Logo_skatteetatenÞetta er tekið af Börsen í Danmörku en birt fyrst í Dagens Næringsliv í Noregi.

Den norske nationalfølelse er under hårdt angreb, endda fra en tidligere statsborger. Det er John Fredriksen, der er blevet alvorligt træt af den norske mentalitet.

"Norge er det eneste sted i verden, hvor der er problemer for mig. Det er misundelse og jantelov. Det har kostet alt for mange kræfter. Jeg er glad for det land, hvor jeg er født, men jeg er færdig med Norge som forretningsland," siger han til den norske netavis dn.no.

En stor del af hans ophidselse skyldes ifølge dn.no en rækker bøder, som Frederiksen fik i forbindelse med opkøbet af selskabet Eastern Drilling. Men også investeringsmiljøet er han færdig med.

Han vurderer, at Norge fuldstændigt har udspillet rollen som shippingland på grund af skattesystemet.

For et år siden fik Fredriksen nok af det norske skattesystem, indleverede sit norske pas og bosatte sig på Cypern.

Er þetta sem koma skal á Íslandi, ef Ömmi og Jarpur komast til valda?  Já, líklega!  Við höfum að vísu ekki Janteloven (hægt að lesa í eldri færslu) á Íslandi en þeir bræður lesa þau örugglega fyrir svefninn.


"Þetta eru gögn frá ASÍ"

USSRVar að horfa á þennan borgarafund á RÚV um skattamálin.  Með eindæmum að þáttastjórnandi vitnar bara í tölur ASÍ sem, síðast þegar ég vissi, voru í eldheitri kosninga- og áróðursherferð fyrir sósíalista og umhverfisfasista.  Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ er svo þekktur fyrir sínar dómsdagsspár um efnahag Íslands, sem komast á framfæri á mánaðarfresti í sjónvarpinu.  


Milan verður það!

Milan verður fórnarlambið i Aþenu í lok maí.  Öruggur sigur á júnæted staðreynd og bara aldrei spurning eiginlega hvert stefndi.  Ég verð nú að segja það, ég sem einstakur júnætedhatari, að ég hef aldrei...já aldrei séð júnæted spila svona skelfilega illa.  Allt fór í skapið á þeim, virtist vera að þeir bjuggust við aukaspyrnu í hvert skipti sem þeir duttu? Ég hélt að þetta væri eiginleiki ítalskra liða? 

En hvað um það.  Við Liverpoolmenn munum halda heiðri enskra liða á lofti í Aþenu og koma með dolluna heim til Liverpoolborgar í sjötta skiptið!  


Var ég að horfa á sama leik og Múrinjó?

Tekið af fotbolta.net. 

,Fólk var að tala um andrúmsloftið en ég tók ekki eftir neinu sérstöku andrúmslofti. Ég sá ákaft andrúmsloft en ég sá eitt lið í bláu sem spilaði til þess að vinna. Ég sá eitt lið í bláu sem vildi spila vel,” sagði Mourinho.

,,Þeir áttu góðan kafla í fyrri hálfleik en eftir það fannst mér bláa liðið vera betra liðið svo að mér fannst andrúmsloftið ekki vera ástæða fyrir neinu.”

,,Chelsea reyndi að vinna leikinn í 90 mínútur og í framlengingu. Þú gast séð að í öllum aukaspyrnun setti Chelsea alla sterka leikmenn í teiginn og reyndi að skora. Við sýndum greinilega að við vildum vinna leikinn,” sagði Mourinho.

Ehhh....var ég að horfa á sama leik?  Tjélskí var yfirspilað í a.m.k. 90mínútur og svo talar hann bara um að eitt lið kom til að vinna? Af hverju vann Liverpool þá, ef liðið spilaði ekki til sigurs?


mbl.is Ranieri varar Mourinho við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmm!?

Ætli Ingólfur Arnason hafi haft áhyggjur af hlýnun Jarðar? Egill Skallagrímsson? Eiríkur Rauði?  Gísligislisursson Súrsson og síðast en ekki síst Svend Tveskæg konungur í Danmörku frá 985 - 1014 ?? 
Ætli þeir hafi mælt hitastig sjávar dag og nótt?  Er þetta kannski bara vitleysa og bara gangur náttúrunnar, sem vísindamenn vilja afsanna og helst ekki trúa til að hafa eitthvað að gera?  Er það ekki bara!? Wink
 


mbl.is Ekki verið heitara í Danmörku frá því á víkingaöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómskvöld á Anfield!

Þá er komið að því.   Kemst Liverpool í úrslitaleikinn Meistaradeildarinnar í kvöld?  Spái 3-1 fyrir mínum mönnum.  Kíkið á myndbandið sem Sýn gerði um úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2005, áður en þeir búa til nýtt myndband um Liverpool fyrir 2007 leikinn!Wink  

Varðandi Tjélskí; þá getur ekki annað verið en að Múrinjú fær að fjúka ef hann vinnur ekki umrædda dollu.  Þegar maður horfði á lið þeirra í fyrri leiknum, saup maður kveljur og það vantaði Ballack og Essien!Woundering

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

GBE

Höfundur

Guðmundur Björn
Guðmundur Björn
Det kan godt være, at jeg ikke ved alt – men det er sjældent, at jeg møder nogen, der ved mere.

 

 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...029_1011402
  • ...arfa_adalur
  • ..._092_866238
  • ...yazd_092
  • ...ined_866039

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband