Viðbjóður dagsins!

Mörður Árnason hlýtur að teljast með leiðinlegustu mönnum veraldar.  Röflar og tuðar út í eitt. Er heimsmeistari að grípa frammí fyrir öðrum til að tuða og röfla aðeins meira. Alltaf á móti.  Hamasliðinn Ögmundur Jónasson kemst ekki með tærnar í leiðindum þar sem Mörður hefur hælana.  Hafði gleymt manninum (Merði) þangað til Stöð 2 ákvað að bjóða honum í Ísland í kvöld.  Kvöldið er ónýtt! Reyndi að slökkva en tækin hlýttu ekki!  

Hreinskilnasti maður stjórnmálanna á Íslandi, Pétur Blöndal, átti sinn vífil ekki fegri þegar þeir mættust ótt og títt í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 sáluga.  Mörður röflaði og greip frammí eins og honum væri greitt fyrir það.  Allt var að fara til andskotans á meðan eitt mesta góðæri Íslands gekk yfir.  Tel að það sé ekki tilviljun að hann komst ekki á þing. 

Mörður er viðbjóður dagsins....en ég óska honum velfarnaðar í því sem hann er að gera fyrir utan pólitíkina!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Er ekki allt í lagi á þessum bæ?

Hjálmtýr V Heiðdal, 14.8.2008 kl. 20:15

2 Smámynd: Guðmundur Björn

Hvað meinar þú.  Ertu eitthvað sár yfir því að mér finnnst Mörður leiðinlegur? 

Vertu þá bara annarsstaðar en hér.

Guðmundur Björn, 14.8.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ég er ekki hissa á því að Hjálmtýr sé spældur. Hann hefur átti í harðri baráttu við Mörð í fjölda ára um þennan titil og tekur þvi eðlilega mjög óstinnt upp, og það viagralaust, að verið sé að hygla samkeppnisaðilanum.

En nú er málið að troða smá víagra í þá báða og vona að þeir fari að taka þessu upp með stinnari hætti.

Sigurður Sigurðsson, 17.8.2008 kl. 13:25

4 Smámynd: Snorri Bergz

Snilld.

Og meira að segja Sigurður gamli meikar sens. Þú hefur greinilega góð áhrif á þann gamla.

Snorri Bergz, 17.8.2008 kl. 13:40

5 Smámynd: Guðmundur Björn

Hehe!

Guðmundur Björn, 17.8.2008 kl. 15:06

6 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Hér er allt með sínu lagi.

Hjálmtýr V Heiðdal, 18.8.2008 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

GBE

Höfundur

Guðmundur Björn
Guðmundur Björn
Det kan godt være, at jeg ikke ved alt – men det er sjældent, at jeg møder nogen, der ved mere.

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...029_1011402
  • ...arfa_adalur
  • ..._092_866238
  • ...yazd_092
  • ...ined_866039

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 612

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband