12.4.2009 | 12:36
Ævintýraferð á hálendinu
Fór í mikla ævintýraferð á fimmtudagsmorguninn með björgunarsveitinni Gretti á Hofsósi og Varmahlíð. Keyrt var frá Varmahlíð austur eftir þjóðveginum, inn á Kjalveg og svo í suður á Hveravelli. Sól og blíða var á leiðinni þangað. Sóðaskapurinn var með ólíkindum á Hvervöllum. Traðkaðar bjórdósir, timbur og allskyns drasl á víð og dreif. Frá Hveravöllum var svo keyrt í átt að Kerlingarfjöllum en áfangastaðurinn var skálinn í Setri. Ekki fengum við að njóta útsýnisins norðan við Kerlingafjöll þar sem það gerði smá muggu. Birti þó til þegar komið var framhjá Illahrauni.
Haldið var svo í átt að Nýadal frá Setri suður fyrir Hofssjökul. Á leið þangað var komið stutt við í flottum skála við Þúfuvötn. Keyrt var upp með Kvíslavatni og svo austur í Nýadal. Ekki var búin að vera mikil umferð á þessum slóðum eins og jafnan er á þessum tíma. Ein bíll í Setri og sáum svo þrjá bíla á leiðinni frá Setri í Nýadal. Það var allt og sumt.
Frá Nýadal var svo ákveðið að halda heim á leið með viðkomu í Laugafellsskála, en þar ætluðu snjósleðateymi úr björgunarsveitinni í Varmahlíð að vera. Frá Nýadal yfir í Laugafellsskála er um 31km, eða miðað við aksturinn á okkur svona rétt undir klukkustund. Þegar búið að var að keyra um 10 km frá Nýadal lentu við í smá óhappi sem tafði förinna ansi mikið, en að lokum gerði hana bara safaríkari og meira ævintýri. Komið var í Laugafell milli níu og tíu og dvalið þar til morguns, en þá var lagt af stað til byggða. Snjóalög voru ekki mikil en tafði okkur þó, þar sem pundað var í dekkinn. Komum við svo á Hóla í Hjaltadal um kl. 08:30 eða 24 tímum seinna. Ég rankaði við mér um fimmleytið um síðdegið þegar brósi hringdi, en hann var að leika sér á skíðum á Tindastóli þann sama dag.
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.