28.1.2009 | 20:36
Hvalkjöt á diskinn minn!
Maður hlýtur að fagna ákvörðuninni um að leyfa hvalveiðar næstu árin. Þetta væl ferðaþjónustunnar um að þetta eyðileggi fyrir sér er innihaldslaust og heimskt. Í mörg ár hefur því verið haldið fram af umhverfisfasistum erlendis frá, honum þarna karli á Húsavík og VG að hvalveiðar gefi minna en hvalaskoðun. Það er bara rangt. Hvalkjöt eykur úrvalið í verslunum og færir landanum ódýrari kjötvöru. Hvalkjötið er hið besta kjöt ef rétt er eldað.
Flest öll hvalaskoðunarfyrirtæki á Íslandi eru og hafa alltaf verið á kúpinni. Ef endar eiga að nást saman og einhver framlegð að vera, þá geri ég ráð fyrir að ferð fyrir einstakling þurfi að kosta um 10.000 ISK. Það er að vísu ekki dýrt fyrir útlendinginn núna, en fyrir hallæri hefði verðið verið rán um hábjartan dag.
Lúmskt af EKG að gera þetta og setja væntanlegri komandi ríkisstjórn í smá bobba ef hún vill afnema þetta. Addi Kiddi Gau og Framsókn munu aldrei styðja það. Það hlýtur samt meirihluti þjóðarinnar að vera sáttur við þessa ákvörðun....nema kannski grænmetisætur og kannski 101 rottur á Kaffi Sólón?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:38 | Facebook
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.