30.11.2008 | 11:47
Cancúnferðin
Jæja, þá nennir maður loks að skrifa eitthvað um þessa frábæru Cancúnferð:
Gist var á fínu hóteli, Blue Bay Club Cancún (Marina) sem er um 25 mínútna akstur frá Cancún-eyrinni sjálfri. Á hótelinu voru aðallega Bandaríkjamenn, Kanadamenn, Mexíkóar og Bretar.
Náð var í okkur út á flugvöll og keyrt beint að hóteli þar sem maður fékk G&T við komu og tékk inn. Íbúðin var síðan risastór. Tvö svefnherbergi með baðherbergjum og svo stór stofa. Við létum þrjár svalir duga okkur. Eins og sést á myndinni, þá er ströndin nánast á svölunum hjá okkur.
"All-inclusive" pakkinn hélt manni vel maríneruðum í G&T í ca. 15 daga, en það verður að segja að eftir kl. 10:00, þá var nánast bannað að vera með tómt í glasinu. Þjónarnir sáu til þess. Eitt var þó dálítið kómískt: Við fengum rauð armbönd sem þýddi að við voru í gegnum RCI Timeshare og vorum þá í einhverskonar VIP á hótelinu með þeim sem höfðu gyllt armbönd. Allir Bretarnir og þeir sem komu í gegnum ferðaskrifstofur voru með blá armbönd. Það þýddi að þeir fengu ekki "jafngott" áfengi á barnum og þeir sem höfðu rauð eða gyllt. Þar sem ég sat alloft á spjalli við nokkra Breta með blátt og þau sóttu drykki á barinn, fékk ég að kynnast mexíkósku ginhráolíu mjög oft. Minnir margt á olíuna sem Spánverjar gerðu sem svar við Gordon. LARIOS laxerolíu.
Veðrið lék við okkur alla dagana fyrir utan síðasta daginn (brottfarardaginn). Um 30°C og sólríkt nánast allan tíman en síðasta daginn dró fyrir sólu og það var hvasst og "kalt" 25°C.
Utan þess að liggja á ströndinni í steikjandi sól, baða sig í Karíbahafinu og sitja við sundlaugarbarinn og þjóra G&T og einstaka Tom Collins, var farið í nokkrar skoðunarferðir. Fyrst var farið í dagstúr til Chichen Itzá sem er um 200km akstur frá Cancún; siglt til Isla Mujeres og svo skoðunarferð til Xel-há og Tulum. Johnny og Vanessa buðu okkur svo eina langhelgi til Mexíkóborgar, þar sem þau komust ekki í planlagða fríið til Cancún. 1t 30m flug til Toluca frá Cancún og svo ca. klst akstur til borgarinnar.
Johnny tók fram grillspaðann síðast kvöldið í Mexíkóborg og grillaði einhverjar bestu Chorizo pylsur sem ég hef smakkað:
Yfir heildina þá er Cancún frábær staður að vera á, og mikið meira spennandi en Benidorm, Mallorca, Kýpur og Playa de Inglés á Gran Canaria. Maður verður yfirleitt að kaupa "all-inclusive" pakka þar og svo er stjanað við þig allan tímann. Maður er alveg laus við að eignast "vini" frá svörtustu Afríku sem angra mann endalaus á t.d. Playa de Inglés. Ein hætta er þó í Cancún, að það getur verið ansi dýrt að vera þar, ef maður er mikið á pöbbaröltinu. Bjórinn á um $5 sem er ekki ókeypis í dag fyrir Íslendinga!
Farið verður aftur til Cancún eftir tvö til fjögur ár, svo mikið er víst!
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.