14.10.2008 | 21:16
Heimskan blómstrar!
Í fréttum RÚV var talað um ung hjón MEÐ BARN Á LEIÐINNI sem voru svo gæfusöm að ákveða að taka myntkörfuBÍLAlán þegar íslenska krónan var sem sterkust. Nú rýkur allt upp og afborganir hækka og hækka. Nú segir hin hugaða húsmóðir stopp, best sé að "parkera" bílnum þar sem afborgunin er fáránleg!!!
Hmmm.....bíddu nú við. Þarf ekki að borga af láninu þótt bíllinn sé kyrrsettur?? Heimskuleg fréttamennska eða heimskuleg ung hjón?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Facebook
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heimskuleg fréttamennska.
Ég hugsaði það sama og þú, að fólkið væri ekkert betur sett þó það notaði ekki bílinn - nema það getur auðvitað sparað bensín og tryggingar ef það lætur taka númerin af.
Guðbjörg Hildur Kolbeins, 15.10.2008 kl. 00:04
Já, ég vil frekar trúa því. En því miður er alltof mikið af fólki sem hugsar svona og áttar sig ekki á raunveruleikanum.
Guðmundur Björn, 15.10.2008 kl. 07:30
Já, það er erfitt að þurfa nú sem endranær að svara í sömu mynt. Gott væri nú að geta goldið rauðan belg fyrir gráan, en það eru víst bara draumórar. Datt annars í hug hvort Hannes Smárason íbúi í Kensington og Sigurður Einarsson sem á 2 milljarða króna hús í London séu til í að selja íslensku þjóðinni húsin sín á réttu verði - greitt í Matadorpeningum? Það væri þá bisniss á svipuðum level og þessir apakettir hafa stundað síðustu ár.
Grétar (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.