Er ekki dálítið kómískt að Sindri Sindrason sé að taka HLUTLAUST viðtal við Jón Ásgeir á málgagni Baugs og Samfylkingarinnar....Stöð 2?? HALLÓ!! Var hann ekki fjölmiðla- eða eitthvað fulltrúi hans fyrir nokkrum árum?
Er þetta eitthvað það aumkunarverðasta sem maður hefur séð í lengri tíma? Sindri auðvitað spurði Jón flókinna spurninga og gagnrýnna, eða var hann með spurningarlista fyrir framan sig sem ónefndir aðilar skrifuðu niður fyrir hann?
Þorsteinn Már var svo ekki nógu sannfærandi í Kastljósi í kvöld. Hef þó fulla trú á honum í þessu starfi stjórnarformanns enda þekktur til tiltektar þar sem hann sér sukk.
En stóra spurningin er; mun ég eiga peninga í Sjóði 9 í fyrramálið?
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef Sindri er aumkunraverður,- er sjónarmið þitt og skoðun á málinu brjsótumkennanleg! Hvaðan kemur þú úr veröldinni? Ertu búinn að liggja undir rúminu þína og sofa s.l. viku ? Þetta er ótrúlegt bull hjá þér !
Bjarni Baukur, 30.9.2008 kl. 22:22
Og þú veist allt?
Guðmundur Björn, 30.9.2008 kl. 22:33
Horfðu bara á viðtalið. Þetta er líkt og fólk var að gera grín af Gísla Marteini þegar hann var með Davíð Oddsson í viðtalið í Kastljósi fyrir nokkrum árum.
Sé líka að þú sért mjög sár maður - og ert að leita að bloggum þar sem þú getur hellt þér yfir aðra sem eru að efast um stjórnun bankans og sukksins. Greyið afi þinn, ég á líka peninga í Glitni sem ég get ekki tekið út fyrr en á morgun.
Vinsamlega andaðu áður en þú skrifar athugasemdir Bjarni Baukur....ertu kannski að norðan? Baukur = dós.
Guðmundur Björn, 30.9.2008 kl. 22:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.