23.5.2007 | 20:48
VG veit ekki hver munurinn á einkarekstri og einkavæðingu er!
Verða allir VG-menn velkomnir hingað!
Eru þá VG ekki á móti öllum ehf. fyrirtækjum á landinu? Og hf.? Svei mér þá!
Kolla Klám opinberaði stefnu VG í viðskiptamálum í kvöld. VG er á móti fyrirtækjum sem ekki eru ríkisrekin. Það var að vísu löngu vitað..óopinberlega þó!
Má fólk ekki hafa val í heilbrigðisgeiranum? Mega þeir sem vilja, ekki leita annað og mögulega í dýrari þjónustu, ef þeir vilja? Já, VG hefði komið á neyslustýringu dauðans á Íslandi hefðu þeir komist til valda.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 16:24
C'est la vie!
Það er ekki á hverjum degi sem maður fær það tækifæri að hafna ókeypis miða á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Já, það gerðist í gær og það ömurlegast er, að ég á flug til Aþenu daginn eftir. Tilboðið um miðann kom bara of seint og ég gat ekki einu sinni breytt Business Class fluginu með SAS frá Kaupinháfn!
Ég mun þá bara gera gott úr þessu, og taka þátt í eftirpartýinu með Liverpoolmönnum!
Ætla líka að hafa það gott í Aþenu til sunnudags!
C'est la vie!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2007 | 19:22
Kaupmannahafnarmaraþonið í boði Glitnis!
Já, það styttist í það að Íslendingar kaupi Kaupmannahöfn. Maraþon borgarinnar er orðið "íslenskt"!!
Starfsmenn maraþonsins voru allir klæddir í rauðar treyjur merktum Glitnir og svo voru auðvitað auglýsingaskilti bankans út um allt í borginni í dag.
Ég stend við þá kenningu mína, að innan 20 ára munu Kaupmannahafnarbúar tala íslensku sem fyrsta mál og Kaupmannahöfn verður "Litla Reykjavík"!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2007 | 19:22
Bullið í Skallagrími!
Hvernig fær hann það út að eðlilegt sé að flokkur sem tapaði tveimur þingmönnum og rúmlega 4% í fylgi, ætti að fá stjórnarmyndunarumboð en ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem er sigurvegari kosninganna og stærsti flokkur landsins.
Já, aumkunarverðari stjórnmálamaður finnst ekki á Íslandi nú um stundir. Bullið í honum nær engri átt, hann reynir eins og hann getur til að tala sig inn í ríkisstjórn.
Það verður gaman að sjá greyið og bullukollana í VG í stjórnarandstöðu aftur.
Það eitt er Íslandi til heilla.
Steingrímur: Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar allt of hægrisinnuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.5.2007 | 17:08
Flaut Paul Nikolov til Íslands?
Maður á ekki að vera gera grín af þessu, en þetta er nú samt fyndið!
Umhverfisfasistinn Paul Nikolov flaut til Íslands árið 1999! Það segir hann allavega í eigin bloggi!
"Ég vissu ekki hvað Eurovision var fyrir en ég flaut til Íslands í 1999"
Tekið af: http://paul.blog.is/blog/paul/#entry-209766
Birt með fyrirvara um að um stafsetningarvillu sé að ræða!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 13:32
Brandari dagsins hjá Mogganum?
Ávallt gaman að svona bröndurum - minnihlutastjórn vinstrimanna með Framsókn sem hjálparhjól!!
Valdaþorstinn er með ólíkindum í SJS og IGS. IGS er auðvitað að fara á taugum vegna útreiðarinnar um helgina og verður að komast til valda til að bjarga pólitískum ferli sínum, á meðan SJS lifir ekki af aðrar kosningar í stjórnarandstöðu.
Hafa áhuga á myndun minnihlutastjórnar í skjóli Framsóknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 19:18
Kynjakvótakjaftæðið!
Ætlar þessi vitleysa engan endi að taka? Öfgafemínistar eru ekki ánægðir með að hlutfall kvenna sé ekki nóg á þingi, eftir kosningar gærdagsins. Nú vilja þær bara setja kvóta til að tryggja ákveðinn fjölda kvenna á þingi.
Á bara að setja konu inn á þing vegna þess að hún er kona? Þarf hún virkilega ekki að hafa eitthvað til málanna að leggja, og hafa áhuga að fara inn á þing? Hverslags vitleysa er þetta? Er þetta ekki bara val hjá konum; þær fara í prófkjör og ákveða að sækjast eftir ákveðnum sætum. Ef þær fá góða kosningu þá bara gott; ef ekki þá bara sorrí!
Þetta snýst alltaf út í öfgar á endanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 09:28
Islands regeringskoalition vinder valget
Það var léttir að lesa þessa fyrirsögn í vefútgáfu Jyllands-Posten í morgun. Sé þó ekki fyrir sömu flokka vinna saman, S kemur inn fyrir B?
Nú er bara að dýfa sér inn á mbl.is og visir.is og kryfja kosninganóttina!
Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2007 | 20:27
Með ólíkindum...
Mikki Mús" heldur áróðrinum áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 19:10
Íslendingar vs. nordisk socialisme
Já drepfyndið atriði átti sér stað á morgunfundi okkar í vinnunni hér í Kaupinháfn í morgun. Þegar liðað var á þennan annars létta fund, biður einn reyndasti og elsti Daninn um orðið og bendir á það, að nú fara fleiri og fleiri viðskiptavinir að koma inn á skrifstofuna. Þess vegna þyrfti að taka einhverja kassa og hillur í burtu, sem honum þótti eitthvað vera fyrir, og alls ekki sæmandi vinnustaðnum.
Svarar framkvæmdastjórinn (íslenskur, en búsettur lengi í DK) honum þannig að Íslendingar sem þættu þetta eitthvað "vandamál" myndu nú bara gera eitthvað í málinu og taka á því, en ekki bíða eftir næsta fundi og ræða málið og taka það í gegnum eitthvað sósíalískt ferli með tilheyrandi langlokugerð og skriffinnsku!
Verð ég nú að segja að mér og framkvæmdastjóranum þóttum þetta með eindæmum fyndið, en eitthvað varð Daninn hissa og smámóðgaður yfir svarinu. Þetta endaði allt samt vel og ákveðið var að setja þetta í "referat"bókina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
GBE
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar