Og loks kvartar göngugrindin!

Nú er göngugrindin farin að kvarta um aðgerðarleysi þessa hrúgalds sem kallar sig aðgerðarstjórn.  Aðgerðarleysið er algert.  Jarpur grætur bara ákvörðun fyrirrennara síns um hvalveiðar og æfir sig í norsku til að geta tala við Norsarann sem á bara að vera Seðlabankastjóri í nokkrar vikur eða þangað til Þorvaldi Gylfasyni verður afhentur stóllinn.  Ögmundur afturkallar sparnaðaraðgerðir Guðlaugs Þórs og gramsar í kössum heilbrigðisráðuneytisins til að koma höggi á hann; Jóhanna hefur þó samið uppsagnarfrumvarp sögunnar með miklum vandræðaleik; Kolla er bara óvinsæl og aðhefst ekkert, enda óhæf til alls; félagsmálaráðherra er að gera .......já hver er það?  Dómsmálaráðherra er að gera eitthvað sem enginn veit; viðskiptaráðherra kemur þó fram í fjölmiðlum annað slagið og segist vera að gera eitthvað - en ekkert gerist samt sem áður.  Össur er upptekinn að blogga illa um Sjálfstæðisflokkinn og kynlíf silunga í Þingvallavatni fram á rauða nótt.  Það eina sem honum hefur dottið í hug er að leggja niður stofnun sem formaður eigin flokks stofnaði!? 

Úff.....landið verður orðið af eyðimörk með þessi hrúgöld við stjórn.


Ber aðalhagfræðingur enga ábyrgð?

Já, þessi blessaði samsuða sem stjórnar landinu hefur náð að afkasta einu.  Skrifa langt uppsagnarbréf til að koma tveimur mönnum frá.  Síðan fær aðalhagfræðingurinn að halda áfram?  Er hann kannski umhverfisfasisti eða sósíalisti og þess vegna má hann vera memm? 

 


mbl.is Nýr seðlabankastjóri settur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvítis fokking fokk!

Davíðshatarar, Samfó og VG eru væntanlega að drepast úr bræði núna, eftir viðtalið við Davíð. 

Snilldarviðtal og góð gagnrýni á okkar annars ÖMURLEGU fjölmiðla.   Ágætt hjá karlinum að setja ofan í Sigmar enda íslenskir fréttamenn flestir fastir í vonlausum drama- og æsifréttastíl.

 


Hvar er öll popúlismaumræðan um inngöngu í ESB?

Hvar er krafan um inngöngu í ESB frá Samfó núna?  Sjálfstæðisflokknum var bara hótað að ef þeir myndu ekki lagfæra afstöðu sína í þeim málum, væri stjórnarsamstarfið búið.  Nú heyrist ekki tíst frá þessu sama fólki. Hvað veldur?  Lýðskrum dauðans sem verður jafnan til hjá Samfylkingarfólki?  Af hverju er ekkert talað um upptöku Evru núna?  Vegna þess að Steingrímur J. hefur bannað hana, þar sem hann vil gera Ísland af kommúnu í Konungsríkinu Noregi.   Það var sem sagt eina krafa VG þegar farið var í stjórnarviðræður við Samfó um daginn, að ekki yrði talað um inngöngu í ESB.  Samfó er auðvitað í dauðaslitrunum og full af sauri, að hún lætur trampa á sér eins og gleðikonu með slæmt og fúlt gyllinæði. VG þráir svo bara völd enda Steingrímur karlinn verið í stjórnarandstöðu í tvo áratugi og orðinn langþreyttur á því að sitja út í sal

 


Bara snilld

Sé fyrir mér Davíðshatara lesa þetta bréf og gjörsamlega sturlast af bræði.   Svarbréfið hjá honum er mjög gott og fróðlegt verður að sjá hvað Jóhanna gerir, hún hefur misstigið sig illilega í ferlinu finnst mér.   Það er ljóst að hann á ekki að víkja á faglegu nótunum, það er bara vegna þess að hann heitir Davíð Oddsson er Sjálfstæðismaður og hataður af 50% þjóðarinnar. Popúlismi??

Ég vil svo minna fólk á það að það er JARÐFRÆÐINGUR sem er fjármálaráðherra landsins og flugfreyja sem er forsætisráðherra.  Það er ekki verið að tala mikið um það, en að vera dýralæknir og ráðherra var bara fáránlegt og skömm!

Síðan var frostavetrinum 1918 Davíð Oddssyni að kenna og hérna rafmagnsleysinu í Kópavoginum 1981 sem stóð yfir í um 20 mínútur.  Ég er með heimildir fyrir!Wink


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hólar í Hjaltadal

Fyrsti laugardagurinn á Hólum í Hjaltadal mætti með heiðskíru og kulda.  Skrapp í smágöngutúr til að skoða mig um með myndavélina að vopni.

holar_i_hjaltadal_februar_026x_785391.jpg

 


Skagafjörður

Jæja, þá er maður loksins kominn á Hóla og búinn að fá búslóðina og alles.  Nýji ísskápurinn reyndist svo gallaður - húmbúkk!!  Heimilistæki hf. redda því.  

Íslenskt verðlag er gott, sanngjarnt og bætandi.  Handsápa 250 ml kostar aðeins 789 kr. í KS (Kaupfélagi Skagfirðinga); það er bara sanngjarnt verð.Wink

Það fæst hið minnsta hrossaket í Kaupfélagi Skagfirðinga á góðu verði.  Það get ég vottað hér og nú!

Velkominn í sveitina! 


Hvalkjöt á diskinn minn!

Maður hlýtur að fagna ákvörðuninni um að leyfa hvalveiðar næstu árin.  Þetta væl ferðaþjónustunnar um að þetta eyðileggi fyrir sér er innihaldslaust og heimskt.  Í mörg ár hefur því verið haldið fram af umhverfisfasistum erlendis frá, honum þarna karli á Húsavík og VG að hvalveiðar gefi minna en hvalaskoðun.  Það er bara rangt.  Hvalkjöt eykur úrvalið í verslunum og færir landanum ódýrari kjötvöru.  Hvalkjötið er hið besta kjöt ef rétt er eldað. 

Flest öll hvalaskoðunarfyrirtæki á Íslandi eru og hafa alltaf verið á kúpinni.  Ef endar eiga að nást saman og einhver framlegð að vera, þá geri ég ráð fyrir að ferð fyrir einstakling þurfi að kosta um 10.000 ISK.  Það er að vísu ekki dýrt fyrir útlendinginn núna, en fyrir hallæri hefði verðið verið rán um hábjartan dag.

Lúmskt af EKG að gera þetta og setja væntanlegri komandi ríkisstjórn í smá bobba ef hún vill afnema þetta.  Addi Kiddi Gau og Framsókn munu aldrei styðja það.  Það hlýtur samt meirihluti þjóðarinnar að vera sáttur við þessa ákvörðun....nema kannski grænmetisætur og kannski 101 rottur á Kaffi Sólón?

 


Verður Spaugstofan áfram öflugasta stjórnarandstaðan?

Ég hef skrifað um það áður, um að forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, hafi sagt um árið í jeppaferð um Landmannalaugar og Veiðivötn, þegar staðið var við varðeld og drukkið, að öflugasta stjórnarandstaðan væri Spaugstofan.

Nú verður fróðlegt að sjá hvort meðlimir Spaugstofunnar séu og hafa verið í pólitískum áróðri eða í fagmannlegum gamanleik allt sitt líf.Errm


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

GBE

Höfundur

Guðmundur Björn
Guðmundur Björn
Det kan godt være, at jeg ikke ved alt – men det er sjældent, at jeg møder nogen, der ved mere.

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...029_1011402
  • ...arfa_adalur
  • ..._092_866238
  • ...yazd_092
  • ...ined_866039

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband